núna gerist það
13.01.2008 22:09:04 / eggettad

Kúrar

jæjajæjajæjajæjajæja,,:(

 

 

 

Maður er orðin 182.5 kíló:'(

En ég er að fara í svona hreinsunarkúr sem maður borðar bara grænmeti og ávexti í 11 daga, ákveðið mataprógram hvað maður má boðra á dag,

Vínkona mín fór í þetta og missti 6 kíló og hefur ekki bætt þeim á sig aftur,
Svo í frammhaldi við það ætla ég í vatnsmelónukúrin, þá borðar maður bara vatnsmelónur í 3 daga, en já sagt er að maður eigi að missa 3 kiló á því þannig ég ætla að gera þetta!

Núna er komið nýtt ár þannig
Gleðilegt nýtt grannt ár;*

Markmiðið fyrir árið er að verða um 150-160 kíló

Vonandi gengur það (ég ætla að láta það gerast)
Komin með nó að þessum ógeðslega lífstíl.

En núna er komin nótt þannig

GN;*

 

Bollas
Hress á nýju ári:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 17:05:53 / eggettad

Jæja :S

Kúkur í Buxum :S

Jáá eins og ég seiji Kúkur í Buxum,,

Er ekki búin að vera að hreyfa mig neitt og það eru bara allar tölur að fara upp.

Núna var ég t.d að klara að fá mér 2 brúnkökusneiðar
EKKI GOTT!

En jáá ég var dugleg í gær fór í sund og gorðaði ekkert óholt (ágætis tilbreyting)

En ég veit að ég verð að fara gera einhvað í þessu.

Hey þarf að fara :)

Bollas back in action :D
hopfully :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 07:45:39 / eggettad

Vika 2

jeminn,

Þessi vika er hálfnuð og ég er enþá föst í þessu helgarsukki, En núna er það búið fyrir fullt og allt, ég ætla að reyna að borða líka holt um þessa helgi því ég á ekkert við því að hafa gert þetta á mánudaginn&þriðjudaginn, En núna er miðvikudagur og þá ætla ég að reyna að fara í sund og reyna að gera svoldið af styrktaræfingum, Núna er ég kominn í átaksstuðið þannig


100-200 magaæfingar á dag


Sund að minnstakosti 1 kílómetra

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 13:30:31 / eggettad

Vika

500 gr

Jáá, ég er búin að missa 500 grömm á einni viku. ÉG held að það sé bara allt í lægi, en eg var að vonast eftir einhverju aðeins meira.
En jáá þetta gengur bara svona lala hjá mér í þessari megrun, Ég sukkaði eins og háfviti um helgina, Endalaust nart og nart í nammi,
Ég er að fara í sund og ég ætla að reyna að synda einhvað um 1kílómeter.
En jáá, ég ætla að reyna að standa mig betur í vikunni en það byrjar ekki vel var að narta í dorítos en ég er hætt núna,

ÉG ætla að reyna að losna við önnur 500 gr þessa viku (kannski meira)(EKKI MINNA) en já nó að gera þarf að fara

bollas


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 12:09:30 / eggettad

Dagur 3.

Jæja,

Dagur 3.

Jáá ég er ekkert búin að geta hreyft mig síðan á mánudaginn því ég var að vinna í allan gærdag og fór svo í afmæli. Fékk mér litla rjómatertusneið og 2 pönslur. Ég var nú ánægð með það því að ég hefði alveg getað mist mig en ég náði að stjórna mér,

Get örugglega ekki gert neitt í dag með hreyfinguna, Því ég er með voa mikinn verki í hnénu.

En jáá Ekkert að gerast hjá mér í þassu átaki en þarf að fara.

Bollas

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 18:56:41 / eggettad

Já Nú byrjar það!

Jáá,,

 Sælar,, ÉG ætla að reyna að hafa þessa síðu Nafnlausa þannig þið getið kallað mig bollas,,  en jáá..

Ég er mikið yfirþyngd og ég ætla að reyna að taka af mér 5-10 kíló,, Kannski meira, kannski minna,, :D

ÉG hef oft reynt en aldrei tekist hjá mér.

Núna ætlar þetta að gerast (L)

LOVELOVE


» 2 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill